Morgunblaðið - 09.04.1969, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.04.1969, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1969 Vörnin sem Friörik valdi, kom Guðmundi á óvart SKÁKÞING íslendinga hefir orðið sérstaklega at- hyglisvert og spennandi, vegna þess að okkar gam- alkunna meistara, Friðriki Ólafssyni hefir verið* alvar- lega ógnað af ungum skák- snillingi, Guðmundi Sigur- jónssyni, sem aðeins er 21 árs að aldri. Mbl. sneri sér til þeirra Friðriks og Guð- mundar og spurði þá um skákina, sem þeir tefldu á annan dag páska. Friðrik varð fyrst fyrir svörum. Hann komst svo að orði: — Þetta verður að teljast „faktisk“ úrslitaskák milli okkar Guðmundar, því til þess að hann vinni hér eftir, verð ég að tapa minni skák í kvöld, en hann að vinna sína. Auðvitáð tefldi hann þessa skák okkar til vinnings. Ég bauð honum hinsvegar jafn- tefli eftir 25 leiki, en það þáði hann ekki og ég skil það vel. Um skákina sjálfa get ég sagt það að hún var fremur þung og erfið framan af. Ég tefldi vörn, sem mun hafa komið Guðmundi nokk- uð á óvart, enda nota ég hana sjaldan. Þetta er svonefnd Alechíne-vöm, kennd við gamla heimsmeistarann. Þetta varnarafbrigði, sem ég beitti, er þungt í vöfum og seinlegt. Ég þurfti því að nota allmik- inn tíma. Hins vegar var ég með betri stöðu eftir 25 leiki, og tel mig ekki hafa gert neitt vafasamt tilbóð, er ég bauð jafntefli. En ég valdi hæpið framihald og komst í hættulega aðstöðu og náði Guðmundur þá undirtökun- um og auk þess bættist það svo við, að tíminn var far- inn að hrjá mig. Mér tókst hins vegar með lagni að kom- ast fram'hjá öllum boðum og tryggja mér jafntefli, þegar tilskildum leikjafjölda var náð. Um mótið í heiid vildi ég segja að þáð hefir verið ágætt. Þarna eru márgir ung- ir, sterkir skákmenn, sem lofa góðu. Það er ekki ástæða til að amast við þróuninni, þótt hún bitni á manni sjálf- um. Annars hefir aðalein- kenni mótsins verið kapp- hlaupið milli okkar Guðmund ar. Ég vil svo að lokum hvetja þessa ungu menn, sem þarna tefldu, til frekari dáða og vona að árangur þeirra á þessu móti verði áfangi á þeirri leið, sagði Fri'ðrik Ólafsson. Guðmundur Sigurjónsson sagði svo um þessa skák: — Eg varð að vinna þessa skák til þess að eiga ein- hverja möguleika á að vinna mótið og út frá því sjónar- miði tefldi óg. Friðrik er alls ekki vanur að tefla þessa vörn. Mér fannst skákin ekki nógu jafnteflisleg, þegar B’rið- rik bauð það, og ég tel að þá hafi veri’ð mikið eftir af skák inni, en hins vegar tel ég lík- iegt að ég hefði tekið jafn- tefli, ef staðan hefði ekki verið þessi í mótinu. Svo fór að skákin var tvísýn fyrir Friðrik, nokkru fyrir lokin, en síðar kom í ljós við nán- Hápunktur Skákþings íslendinga var þegar Guðmundur (sitj andi) og Friðrik mættust í 10. umferð. Skákin endaði með jafntefli. Guðmundur, en hann er var íslandsmeistari 1968, tapaði í 3. umf. fyrir Hauki Angantýssyni, hefur ekki tapað nema einni skák í mótinu og hefur fylgt stórmeistaranum eftir eins og skuggi allt mót ið, en alltaf verið á eftir. Frið- rik hefur ekki tapað skák, og teflt af miklu öryggi. ari athugun að skákin var jafntefli, ef alltaf voru leikn- ir beztu leikirnir hjá báðum. Tímahrakið var einnig erfitt fyrir Friðrik, og ýtti það undir mig að tefia til vinn- ins, sagði Guðmundur Sigur- jónsson. Skákþing íslands 1969: Friðrik nær örugg- ur sigurvegari Cerð/ jafntefli við Guðmund Sigurjónsson FRIÐRIK Ólafsson hefir nú næstum tryggt sér sigur i lands- liðsflokki á Skákþingi íslands, en í 10. umfeið gerði hann jafn- tefli við Guðmund Sigurjónsson I fjörugri skák, sem hundruðir áhorfenda fylgdust með. Aðeins ein umferð er eftir og er staðan þessi: Friðrik Ólafsson 8'/j, Guð- mundur Sigurjónsson 7Vi, Björn Þorsteinsson, Freysteinn Þor- bergsson og Haukur Angantýs- scm 6 hvor, Björn Sigurjónsson 5, Arinbjörn Guðmundsson og Jón Hálfdánarson VÆ hvor, Jón Kristinsson 3*4, Halldór Jónsson og Jóhann Þórir Jónsson 3 hvor og Jóhann Örn Sigurjónsson 2t4 vinning. Skákþingið hefur staðið yfir síðan laugardaginn 29. marz og var teflt alla daga. Úrslit í fyrstu umferðunum hafa áður birzt í biaðinu, en hér fara á eftir úrs.ií i 5. til 10. u-mferð, ásamt biðskákuinum. Biðskákir úr 2., 3. og 4. um- ferð fóru þannig að Guðmund- ur vann Freystein, Haukur vann Halldór, Haldór vann Björn Þo steins or,, Jóhann Örn vann Björn Sigurjónsson, Friðrík vann Jóhann Þóri og Björn Sig- urjónsson vann Jón Kristinsson. Freysteinn og Jón Kristinsron gerðu jafntefli, þá gerðu og jafn- tefli Guðmundur og Björn Þor- steinsson og Halldór og Jón Hálf dánarson. 5. umferð: Arinbjörn vann Björn Sigur- jónsson, Friðrik vann Jóhann Örn, Jóhann Þórir vann Hall- dór, Haukur vann Jón Kristins- son og Guðmundur vann Jón Hálfdánarron, en Björn Þor- steinsson og Freysteinn gerðu jafntefli. 6. umferð: Jón Kristinsson vann Arin- björn, Guðmundur vann Jóhann Þóri, Jón HáLfdánarson vann Freystein og Halldór vann Jóhann Örn. Jafntefli gerðu Friðrik og Björn Sigurjónsson og Haukur og Björn Þorsteins- son. Björn Sigurjónsson hinn ungi Kópavogsbúi kom mjög á óvart með jafntefli ge-gm stór- meistaranum Friðrik. Staðan eftir 6 umferðir var þessi: Friðrik 5 vinn., Guðmund- ur 4%, Arinbjörn 4, Björn Sig- urjónsson og Haukur 3V2, Frey- steinn 3, Björn Þoriteinsson og Halldór 2V2, Jón Hálfdánarson, Jón Kristinsson og Jóhann Örn 2 og Jóhann Þóri-r 1% vinning. 7. umferð: Björn Þorsteinsson vann Jón Kristinsson, Björn Sigurjónson vann Halldór og Friðrik vann Arimbjörn, en Jóhann Örn og Guðmundur, Jóhann Þórir og Freyyteinn og Jón Hálfdánarson og Haukur gerðu jafntefli. 8. umferð: Friðrik vann Jón Kristinsson, Guðmundur vann Björn Sigur- jónsson, Freysteinn vann Jóhann Örn og Jóhann Þórir vann Hauk. Björn Þorsteinsson og Jón Hálf- dánarson og Halldór og Arin- björn gerðu jafntefli. 9. umferð: Friðrik vann Halldór, Guð- mundur vann Arintbjörn, Hauk- ur vann Jóhann Örn og Björn Þorsteins.on vann Jóihann Þóri. Jafntefli gerðu þeir Jón Hálf- dánarson og Jón Kristinsson og Björn Sigur jónsson og Frey- steinn. 10. umferð: Freysteinn vann Arinbjörn, Haukur vann Björn Sigurjóns- son.on, Björn Þorsteinsson vann Jóhann Örn, Jón Hálfdánarson vann Jóhann Þóri og Jón Krist- insson vann Halldór, en Guð- mundur og Fririk gerðu jafn- tefli, sem fyrr segir. Skák Guðmundar og Friðriksi úr 10. umferð á Skákþingi ís- lands í fyrradag: Hvítt: Guðmundur Svart: Friðrik Aljechins-vörn. 1. e4, Rf6 2. e5, Rd5, 3. d4, d6j 4. Rf3, Bg4 5. Be2, e6 6. c4, Rb6 7. exd6, cxd6 8. 0-0, Be7 9. Rc3, 0-0 10. b3, Rc6 11. Be3, d5 12. c5, Rc8 13. b4, a6 1'4. Hal, Bf6 15. Dd2, Rce7 16. b5, axb5 17. Rxb5, Rf5 18. Hlfdl, Ha4 19. Dto2, Bxf3 *20. Bxf3, Hb4 21. Da3, Hxbl 22. Hxbl, Bxd4 23. Bxd4, Rfxd4 24. Rxd4, Rxd4 25. Hxb7, Dc8 26. Da7, Rxf3t 27. gxf3, d4 28. Hd7, Dc6 29. Hxd4, Dxf3 30. Dd7, e5 31. Hd3, De4 32. c6, Delf 33. Kg2, De4f 34. Hf3, g5 35. h3, g5 36. Df5, Dxf5 37. Hxf5, f6 38. Hf3, Kf7 39. Hc3, Ke7 40. Kf3, f5 41. c7 (blindleikurinn). Hér var samið um jafntefli án þers að tefla frekar. — sg. Lokastaðan: Friðrik Bridge ÍSLANDSMÓTIÐ i bridge árið 1969 fór fram I Reykjavík dag- ana 29. marz til 5. apríl. íslandis- meistari varð sveit Hjalita Elías- sonar, en auk Hjalta eru í sveit in.ni Ásmund'ur Pálsson, Einar Þorfinnsson, Jakob Ármannsson, Karl Sigurhjartarson og Jón As- björnsson. í meistaraflokki kepptu 10 sveitir og varð röð þeirra þessi: 1. sveit Hjalta Elíassonar 151 stig 2. sveit Benedikts Jóhannesson- ar 143 stig 3. sveitStefáns J. Guðjohnsens 134 stig 4. sveit Hannesar Jónssonar 107 stig 5. sveit Guðlaugs Jóhannsson- ar 99 stig 6. sveit Steinþórs Ásgeirsson- ar 70 stig 7. sveit Vibekku Scheving 58 stig 8. sveit Alberts Þorsbeinsson- ar 40 stig 9. sveit Birgis Sigurðssonar 14 stig 10. svei't Dagbjarts Frímssonar 14 stig í 1. flokki kepptu 20 sveitir og var þeim skipt í 2. riðla. Úrslit urðu þessi: A-riðill 1. sveit Harðar Steinbergsson- ar 144 stig 2. sveit Guðmundar Ingólfsson- ar 116 stig B-riðill 1. sveit Sigurðar Emiflssonar 111 stig. 2. sveit Baldurs Ólafssonar 104 stig Þar sem fyrirtougaðar eru breytingar á keppnisreglum varð andi íslandsmót er ekki vitað hvaða sveitir muni skipa meist- araflokk næsta ár, en samkvæmt fyrri reglum hetfðu 4 neðstu sveilt irnar fallið niður í 1. flokk, en 2 efstu úr hvonum riðli flutzt upp í meiistaraflok'k. Mótið fór vel fram og vom áhorfendur margir. Verðlaun voru afhent í mótslok sl. laiugar- dag. tIzkusAu ANDREU MIÐSTRÆTI 7 SÍMI 1 9395 Guðmundur T annlœkningastofa mín er flutt að Ingólfsstrœti 4. Sími 12632 FKIÐLEIFUR STEFÁNSSON, tannlæknir. Iðnaðarhúsnœði Til leigu frá næstu mánaðarmótum gott iðnaðarhúsnæði á jarðhæð 300 ferm. að stærð með stórum aðkeyrsludyrum og góðum gluggum. Upplýsingar í síma 83621 eftir kl. 7.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.